Heimur Hjördísar
09.05.2006 17:20:25 / hjorra

Sumarið er komið...

Jæja eða svona næstum því hjá mér, var að klára annað prófið mitt áðan og fer í það síðasta á laugardaginn :) ég var fremst í prófinu og alveg við gluggan og svo sit ég þarna þvílíkt einbeitt, kemur þá ekki þessi svaka hlussufluga og ég skeit næstum í mig! Stökk alveg úr sætinu og tók væri þvílíkan kipp :) fólk hefur örugglega haldið að ég eitthvað rugluð! Sem ég er náttúrulega... er það ekki annars ;) Eftir prófin flyt ég í Sandgerði og fer bara að vinna... Verð að vinna í Lyngseli og ég er farin að hlakka mjög mikið til að byrja :) Ég sit núna úti í garði heima hjá Rafni og er í sólbaði, það er alveg fáránlega heitt hérna úti! Balli býfluga er eitthvað á sveimi hérna í kring og ég er að reyna að tapa mér ekki í hræðslunni ;) gengur líka bara vel hjá mér.... Ég er að fara út 4. júlí og við Rafn ætlum að vera í 2 mánuði að flakka...hlakka ekkert smá mikið til! Þetta verður örugglega geggjað, byrjum á Mallorca með mömmu og pabba að heimsækja spænska vini þeirra og svo höldum við bara á vit ævintýranna :) Ákváðum bara að slá til áður en við förum að kaupa íbúð og svoleiðis... ;) Jæja ætla að halda áfram að sóla mig... Hjödda

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 18:58:38 / hjorra

Jæja...

Maður verður nú að reyna að vera svolítið duglegur að skrifa hérna... Ég er stödd í Sandy hill af því að á morgun kemur dýralæknirinn hingað heim og ætlar að skoða hann Bjarma ofurdog og sjá hvernig hann er...ef það kemur í ljós að hann er orðinn slappur þá verður litli sæti hundurinn minn svæfður :( en hann er nú að verða 14 ára þannig að hann er ekkert unglamb lengur...

Annars var svaka stuð hjá mér um helgina, byrjaði föstudaginn á því að fara í tölvupróf og eftir 10 mín var ég ekki búin að gera neitt og bara 35 mín eftir! Ég semsagt bara lokaðist og var orðin frekar stressuð! En ég fattaði loksins hvað átti að gera þannig að ég náði að klára allt og gekk bara vel :) Síðan á laugardaginn komu þær Jóna, Njóla og Freyja til mín í saumó og það var helvíti gaman, ég og Freyja enduðum á djamminu í kef og ég var að skríða heim klukkan 7 um morguninn en það skemmtilega var að ég varð ekkert þunn daginn eftir...var svo dugleg í vatninu aldrei þessu vant ;) en það algjör snilld á djamminu, hársveiflur og erótískur dans á Yello (ekki ég samt!) og fullur færeyingur að bjóða mér og Freyju upp á skot og svona...já og líka óvæntar bjórgjafir... :) skil samt ekki af hverju maður drullar sér ekki heim fyrr!

Já svo er aðalfréttin hér í Sandgerði sú að lilli bró og kærastan hans eru að fara að eignast lítið barn!! díses ég er í djúpum...komin pressa á kelluna ;) ég ætla nú samt aðeins að geyma þetta í einhver ár í viðbót! Jæja pæja ætla að fara að fá mér að borða og knúsa hvuttann minn aðeins meira ef hann skyldi nú þurfa að kveðja okkur á morgun... Lofa að vera aðeins duglegri að skrifa :)

Hjöddz


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 18:10:16 / hjorra

yo....

Jæja, maður verður nú að reyna að vera duglegur að skrifa hérna inn víst maður var að byrja á þessu aftur! Ég veit bara ekkert hvað ég á að segja hérna, ég geri eiginlega ekkert annað en að læra :) Ég er nú samt að fara í keilu í kvöld með Rafni og tveimur vinum hans og ég er að segja ykkur að ég ætla að rústa þessum aumingjum! Verð eiginlega að fá mér einn bjór í keilunni svo að þeir eigi einhvern sjéns í kelluna :) Annars ætlum við Rafn að fara og fá okkur eitthvað að borða...jömmí! Heyumst...

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 17:24:46 / hjorra

hmmmmm...

Hæ og hó... Það var nú ekki mikið gert um helgina, lærði eins og mófó fyrir próf sem ég fór í í dag og gekk ekkert sérstaklega vel :( gengur bara betur næst! Svo fór ég reyndar í sund á lau með Rafni mínum og við syntum heila 150 metra! Ótrúlegur árangur þarna og ég var að deyja eftir sundið, formið eitthvað orðið lélegt hjá kellunni :) Föstudagurinn var ekki skemmtilegur hér í Garðabæ, þegar ég og Rafn komum heim úr skólanum fundum við Þöll hundinn þeirra hálfmeðvitundarlausa bakvið sófann og brunuðum með hana á dýraspítala en þar kom í ljós að hún var orðin svo veik að það þurfti að svæfa hana greyið :( hennar er sko sárt saknað... Það er nú ekki mikið meira í fréttum hjá mér, funduð þið fyrir jarðskjálftanum í dag? Ég var í skólanum og svo allt í einu hristist allt þvílíkt en enginn sagði neitt, svo las ég það bara á netinu að þetta hafði verið svaka jarðskjálfti! Gaman að þessu :) Jæja ég ætla að fara að horfa á boldið og nágranna Sjáumst...

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 17:16:44 / hjorra

What´s the deeli-o???

Ok ok hvað er málið með kommentakvikindið þarna fyrir neðan?!! Einhver að gera grín?? Spörning að maður fari að drita einhverju á þessa síðu aftur :) Allt bara gott að frétta af kellunni, er á fullu í sálfræðinni og á að vera að læra núna en ég bara nenni því ekki! Í staðinn er ég að horfa á íshokkíleik í sjónvarpinu ;) Go Svíþjóð!!! Ég er að spá í að vera aðeins duglegri að skrifa hérna inn núna, lofa að standa mig vel! Síjú pípúls :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 22:49:17 / hjorra

Um beygingu enskra tökuorða í nútímaíslensku...

Já það heitir þessi skemmtilega grein sem ég er að lesa þessa stundina...ég sit hérna uppí skóla og er að deyja úr leiðindum!! Þetta er einhver grein frá 1970ogeitthvað og GVÖÐ...ég er nú samt í góðum félagsskap svo þetta reddast nú vonandi :)

Annars er alveg brjúlet að gera hjá mér þessa dagana, er að vinna í að klára þessa lokaritgerð, á að skila henni fullkláraðri á morgun (en ég og Gunnsa fáum að skila á föstudaginn), svo er ég að gera nokkur verkefni í viðbót...ég get ekki beðið eftir að þetta verði búið :$

Við erum að fara að keppa á laugardaginn klukkan tvö í Kef city, endilega koma og kíkja!Stefnan er náttúrulega tekin á sigur eins og alltaf...

Rafn var að taka 5. stig í gítar í dag og alveg hreint massaði það! Til hamingju með það Rafninn minn ;)

Það er svo mikið búið að vera að gera hjá mér að ég nenni ekki að skrifa það allt hérna, geri það kannski seinna, en ég fór samt í ferðalag þarsíðustu helgi og við byrjuðum á því að hjóla frá Þingvöllum og á Úlfljótsvatn...aðeins ca. 30 km! Og ekki nóg með það þá var slabb og ógeð á veginum og mótvindur í byrjun...ég var ekki alveg að nenna þessu...en svo var þetta bara alveg geggjað gaman og ferðalagið í heild...maður var í svona nettum 9. bekkjar skíðaferðafílíng :)

Jæja, best að halda áfram að læra...

Hjöddz 


» 111 hafa sagt sína skoðun

13.04.2005 23:45:24 / hjorra

Vei!

Ég var að eignast litla frænku í dag!! Raggi elsti bróðir minn og Fríða kærastan hans eignuðust litla stelpu í dag, 12 merkur og 49 cm...ég var nákvæmlega jafn stór og þung þegar ég fæddist! Hún er rauðhærð og þau skötuhjú sögðu að litla dúllan væri bara alveg eins og stóra frænka :) Ekki leiðum að líkjast! hehe... Nenni ekki að skrifa meir, til hamingju Raggi og Fríða!

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.03.2005 21:15:41 / hjorra

Kominn tími á færslu :)

Jæja, spurning um að fara að skrifa eitthvað hérna... :) Nóg að gera hjá minni en því miður þjáist ég að veiki þessa dagana sem kallast LETI, ég kem mér bara ekki til þess að læra og samt stækkar stresshnúturinn í maganum með hverjum deginum sem ég geri ekki neitt! En þetta er nú samt alltaf á uppleið hjá mér, með auknu stressi fer maður að gera meira :) Ég og Rafn fórum í partý síðustu helgi hjá því sómapari Luke og Erlu og var þema í þessu partýi...þemað var “Pimps and porn” og ég verð að segja að við Rafn litum damn fine út sko! Það var líka svakalegt stuð í partýinu þó að stoppið hafi verið stutt, enda var kellan að fara að keppa daginn eftir...tölum ekki um þann leik... Svo voru 2 skotar hjá okkur í fótboltanum til reynslu og þar eru 2 snillingar á ferð! Þær koma aftur 17. maí til landsins aftur og ég er farin að hlakka svo mikið til sumarsins, það verður algjör snilld!! Maður varð náttúrulega að kenna þeim einhver orð á meðan þær voru hérna og það sem stóð uppúr hjá þeim stöllum var orðið hóra og setningin ojjj vondur matur... við Ágústa létum þær segja setninguna við pabba þegar þær voru að borða heima eitt kvöldið, það var svo fyndið! sem betur fer hefur pabbi gamli húmor og hló mikið af þeim :) Jæja, nenni ekki að skrifa meira...Er að spá í fara og taka myndina Saw, spurning hvort maður þori því! Bæjó

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2005 11:57:49 / hjorra

Vei vei!

Komin helgi einu sinni enn...vikurnar gjörsamlega fljúga áfram! Spurning um að fara að taka sig á í ritgerðarvinnu?? En við vorum að keppa í gær við Stjörnuna og það gekk ekki alveg nógu vel...töpuðum og ég þurfi að fara útaf í hálfleik af því ég er með tak í báðum lærunum! Hvernig er þetta hægt?? Læt það samt ekki stoppa mig í að fara á árshátíðina hjá Kennó í kvöld, það er nú ekki eins og ég geti ekki gengið! Svo er ég að fara uppí sumarbústað á morgun með helmingnum af íslendingafélaginu frá Annecy (The fucked-up crew) og það verður nú eitthvað! Hlakka ekkert smá mikið til.... Jæja, ætla að enda á því að óska Sigrúnu kennógellu innilega til hamingju með afmælið :) Góða helgi allir saman Hjöddz

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2005 23:12:17 / hjorra

Íslenskir stafir!

YES!! Loksins búin að redda íslensku stöfunum á nýju tölvunni :) snnnniiiiillllld...enda segir pabbi hans Rafns að ég sé á rangri hillu í lífinu, ég ætti að læra eitthvað tölvutengt af því að ég næ alltaf að redda öllu svona á heimilinu :) hehe.... En annars unnum við FH í gær 3-2 sem var algjör snilld, vorum undir 2-0 í hálfleik og sem betur fer tókum við okkur á í þeim seinni..Skitum algjörlega á okkur í þeim fyrri! Svo er ég ekki búin að gera mikið um helgina, bara tjill og rólegheit, en næstu helgi er ég að fara á árshátíð á föstudeginum og svo í sumarbústað á laugardeginum svo það verður nóg að gera þá :) Annars nenni ég ekki að skrifa meira, þarf að mæta snemma á morgun svo ég segi bara góða nótt!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2005 10:16:04 / hjorra

Keila smeila

Jæja þá er maður mættur í skólann og byrjuð að læra, eins og venjulega...ég get ekki beðið eftir sumrinu, bara vinna og fótbolti 8) Ég er að fara að keppa í keilu í kvöld og það verður heldur betur tekið á því, eins og margir vita er ekki laust við að það sé smá keppnisskap í kellunni..huhummm....Liðið mitt heitir því skemmtilega nafni "Sigurbjörg og dvergarnir 3" og við verðum fáránlega töff í kvöld!! Svo er leikur um helgina (ALLIR AÐ MÆTA!) við FH í Reykjaneshöllinni og endalaus lærdómur, við Gunnhildur þurfum að fara að taka okkur á í þessari lokaritgerð okkar :) Jæja þarf að fara að læra pípúls.... Hjöddz

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2005 10:16:00 / hjorra

Hair on fire!!

Jaeja helgin buin og min bara ordin frekar slopp svo eg akvad ad vera heima i dag og reyna ad na tessum slappleika ur mer... En i gaer gerdist svolitid SVO fyndid...eg og Rafn vorum ad kaupa okkur stola i ikea og eg keypti kerti i svona litlum kertaglosum, svaka anaegd med tetta allt saman! Svo kveikti eg a kertunum og setti ut i gluggakistu og stolarnir voru settir a fina sta[i (annar vid gluggakistuna)...kannski eru einhverjir ad fatta hvernig sagan endar :) svo akvad eg ad setjast i stolinn og lesa adeins, algjor toffari. og eftir smastund heyri eg svona tssssssssjjjjjj hljod og tad tok mig svoona 5 sek ad fatta ad tad var kveiknad i harinu a mer!!!! Va litli norrinn :) en tetta voru nu engar storskemmdir a harinu a mer, svidnudu bara nokkrir endar en litla smellid sem kom oooooojjjjjj.....ekki god lykt :( eg er nu samt bara anaegd ad eg brenndi bara ekki allt harid af mer :)

» 9 hafa sagt sína skoðun

11.02.2005 07:59:30 / hjorra

Góðan daginn!!

Sjiii...ég er LÖNGU mætt í skólann og klukkan er ekki einu sinni orðin 8...meira ruglið! Rafn er að kenna á gítar uppi í Grafarvogi á föstudögum og byrjar klukkan 8 (hvað er það?) og því var ég mætt hérna uppí skóla klukkan 7:35...veivei! Við áttum að fara að keppa á morgun á KR-vellinum en honum var frestað (hjúkkit)...nú er stefnan sett á lærdóm þegar Gunnhildur kemur og svo fer ég heim í sveitina með honum pabba mínum kl. 3 í dag af því að bíllinn okkar Rafns er í viðgerð :( Hafið það gott í dag og góða helgi!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2005 13:41:23 / hjorra

YO....

Jaeja, verdur eg ekki ad vera soldid dugleg ad skrifa vist eg akvad ad byrja aftur a tessu! Eg maetti i skolann kl 10 i morgun og eg og Gunnhildur sem er med mer i lokaverkefninu aetludum ad vera tvilikt duglegar ad laera en svo var eg bara komin aftur heim klukkan korter i tolf!! VA hvad vid vorum duglegar :) en nuna er eg bara ad hanga og nenni ekki ad laera...aetla ad skella mer i raektina a eftir og taka adeins a tvi svo eg verdi faranlega kottud :) hehe...

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2005 18:40:44 / hjorra

lalala....

Jaeja ta er madur byrjadur a tessu aftur, get ekki skrifad islenska stafi tar sem eg er i nyrri tolvu og engir isl. stafir komnir! Loksins byrjud i skolanum aftur eftir manud i aefingakennslu sem var bara svona agaet...ok get ekki sett inn broskall! Eg er i rosalega finum namskeidum nuna og alveg otrulegt ad tann 11. juni verd eg utskrifadur kennari...otrulegur andskoti....svo er eg a fullu i fotboltanum svo ad nu hefur drykkja og djamm verid sett i bidstodu ! hehe... En jaeja veit ekki alveg hvad eg a ad skrifa, endilega ad skrifa i gestabok! eg er ad vinna i tvi ad setja inn tengla og sonna.... Heyrumst :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2